|
|
| Friday March 10, 2006 |
Flutningur.
Var eitthvað að reyna að hressa upp á þessa síðu, ekki með neinum ásættanlegum árangri! Ætla ða flytja mig annað.Set linkin hér efst til hægri.Tekur eitthvern tíma að setja upp endanlegt form á nýju síðunni á blogspot.com
Þessi upsaid-síða hefur runnið sitt skeið á enda.
Vona að einhverjir rati inn á nýju! |
| Posted by Sperran at 12:44 AM - Comments [1] |
|
 | | Tuesday March 07, 2006 |
Skjálfandi.
Þetta var svona, já hressilegur kippur í gær.Lá upp í sófa að horfa á Seinfeld, þegar hann reið yfir.Ekkert meir um það svo sem að segja. Skrapp seinna um daginn í heimsókn í Kópavoginn, þar sem megnið af liðinu lá alveg bakk í flensu.Vonandi fljót að hressast!
Ýmislegt að gerast liðna helgi, fjölskylduboð með veislumat og myndasýningu á eftir.Mikið hlegið.Þarna voru myndir sem ekki höfðu verið skoðaðar í nærri tuttugu ár.Gamlar slides-myndir. Skruppum svo nokkur saman á dansiball á eftir, það var skroppið nokkrum sinnum á gólfið, engum leiddist held ég.Komið seint heim, ja ég kalla það seint, um hálf-fjögur! Fór og hitti Ragnar bróðir, daginn eftir á ölknæpu einni, fengum okkur nokkra svellkalda með leiknum.Sem vannst, svona einu sinni til tilbreytingar! |
| Posted by Sperran at 4:10 AM - Comments [4] |
|
 | | Saturday March 04, 2006 |
Farinn....
......að sofa, eftir 36 tíma vinnu síðustu 48 stundir! |
| Posted by Sperran at 7:26 AM - Comments [0] |
|
 | | Friday March 03, 2006 |
Þjónusta.
Sá á einni síðu hjá Strandamanni að Síminn hefur engar fyrirætlanir um að bæta GSM skilyrði á þeim slóðum.Þetta voru viðbrögðin við fyrirspurn nokkra heimamanna, hvað það varðar.Þetta á sjálfsagt við, víðar út á landi, þar sem strjábýlt er.Forkólfar Símans telja það sjálfsagt ekki ''svara kostnaði'' að veita úr sjóðum sínum, til frekari uppbyggingar á dreifikerfi sínu.Það er ekki mikil gróðarvon þar að hafa. Enda voru kaup þeirra á Símanum, ekki til þess gerð, að auka við þjónustu viðskiptavina, hvort sem er í þéttbýli eða strjábýli.Þeir vilja bara fá sinn aur til baka, sem þeir greiddu fyrir og fá gróðann sem allra fyrst í hús.Skiljanlegt,eða hvað? Á endanum eru það alltaf við, neytendur, fólkið í landinu sem borgum brúsasnn.Finnst samt, að fyrir það sem ég tel allavega, okurverð á þjónustu, að það sé öllum gert jafnt til höfuðs, burt séð frá búsetu.Heimting að allsstaðar sé hægt að nálgast þjónustuna, ef ekki væri bara öryggisins vegna. Hvar hefur maður einhvern tímann heyrt: ''Einkarekstur tryggir alltaf besta verð & þjónustu til almennings''! Eitthvað á þá leið!!!
|
| Posted by Sperran at 10:12 PM - Comments [0] |
|
 | | Thursday March 02, 2006 |
Taka af skarið!
Titillinn á að gefa til kynna, að ég þurfi að láta til skarar skríða í ákveðnu máli sem ég hef látið sitja á hakanum, um full langt skeið! Vona að það eigi farsælan endi! Annars, hvaðan kemur þetta ''skar'' sem vitnað er í, í þessum orðatiltækjum? Láta til ''skarar skríða''? Þarf að flétta því upp, greinilega.
Síðasta vaktin í törninni í dag, síðan liggur fyrir auka næturvakt annað kvöld og ein væntanlega á mánudag, áður næsta törn á þriðjudagskvöld, byrjar.Skilst að það verði haldið fjölskyldu- boð á laugardagskvöld, þar sem á meðal annars að skoða gamalt slides-myndasafn fjölskyldunar.Minnir að þetta séu eitthvað nálægt þúsund myndir.Einhvers konar skyggnulýsingar kvöld, ásamt öðru.Borða saman og slíkt.Lengi staðið til að koma þessum myndum yfir á tölvutækt form.Kanna það. Búið að vera fullt að gera, þegar vinnunni sleppir, síðustu daga. hrundi hjá mér ísskápurinn, náði mér í ''nýjan'´daginn eftir. Láta hann duga þangað til ég fæ mér annan nýjan, annað hefur forgang fjárhagslega sem stendur.Annars alls kyns útréttingar verið í gangi, sitt af hvoru tagi.
|
| Posted by Sperran at 11:19 AM - Comments [0] |
|
 | | Tuesday February 28, 2006 |
Næturgestur.
Var lengi að ná því að sofna í gærnótt.Tókst þó að lokum, þó sælan væri skammvinn.Í gegnum svefnrofan, fann ég þegar hún skreið upp í rúmið, við fætur mínar.Mig grunaði strax hver væri þar á ferð, því hún býr skammt frá mér og stutt að fara.Hafði reyndar ekki gert sig heima- komna um all langt skeið, taldi hana hafa flutt búferlum. Því kom þessi heimsókn dálítið flatt upp á mig.Hún hrjúfaði sér upp að mér, en ég lét mér fátt um finnast, átaldi hana fyrir að trufla svefn minn og að nærveru hennar væri ekki lengur óskað, á þessum tíma sólarhrings.Eitthvað reyndi hún að malda í móinn er ég tók hana mjúklega höndum og beindi henni út um sama glugga og hún hafði skriðið inn um! Mjálmaði hún þá, á leið sinni út.Tek fram að hliðhollur telst ég frekar til katta, en vil ekki missa svefn af þeirra sökum!
Spurning dagsins er svo: Hver sprengdi heitavatnsæðina, við Sprengisand á Sprengidag? |
| Posted by Sperran at 2:14 PM - Comments [0] |
|
 | | Monday February 27, 2006 |
''Mannrán''!
Mér var ''rænt'' um miðjan dag í gær! Átti að mæta í mat hjá systir þá um kvöldið, en dóttir hennar hringdi í mig og tjáði mér það hún hefði breytt þeim áætlunum og að ég væri að koma í mat til hennar í staðinn.Ég gat ekki nema samþykkt, það væri lambahryggur í boði, ásamt því að ég skyldi veita smá aðstoð við að bora nokkur göt fyrir ljósum.Vorum við ekki lengi að ''snara'' því af! Takk fyrir mig! ''Ryggen'' var afbragð og allt annað með!
Hitt matarboðið á ég inni síðar! |
| Posted by Sperran at 3:57 PM - Comments [2] |
|
 | | Saturday February 25, 2006 |
Tilþrif.
Lá uppí í gærdag, mestallan með einhvers konar kveisu og svona nettri vanlíðan í skrokknum.Leiddist þófið, þegar líða tók á daginn og ákvað að gera eitt allsherjar tilþrifarátak í vistarverum mínum.Fannst eldhúsið eiga skilið meir enn önnur rými, að vera á byrjunarreit í þeim efnum.Fór svo að það tók upp mestan tímann,gerði nánast allt nema skrúfa niður innréttinguna! Annað bíður dagsins í dag, kannski?
Skrapp fyrst niðrí gömlu vinnu, eða þar sem ég dett í auka- vinnu stundum, hitti á ''Valsarann'' og Binna í hádegsimat og kaffi, með tilheyrandi heimsókn í ''Gatið'' eða ''Hurðina'' eins og við Binni köllum það.Það var létt yfir þeim köppum. Annars vorum við að tala um hvað þeir eru margir sem hafa kvatt þennan gamla vinnustað, á stuttum tíma.Einn enn er að kveðja á þriðjudaginn kemur.Rær á önnur og betri mið!¨ Skilst að hans nærveru hafi ekki verið óskað eftir lengur af misvitrum stjórnendum, sem láta ekki fagleg sjónarmið flækjast of mikið fyrir sér.Takk fyrir samstarfið Gunni og gangi þér allt að óskum! You will be missed!!
|
| Posted by Sperran at 1:39 PM - Comments [0] |
|
 | | Wednesday February 22, 2006 |
Dagsljós.
Varla hægt að segja að maður sjái til sólar(?) þessa dagana! Fer heim í myrkri og mæti aftur í myrkri! Svo er rok og rigning! Þetta er nú bara svona, meðan á næturvöktum stendur og ekkert annars út á það að segja.Helst að reyna að halda uppi kímnigáfunni. Ekki örðugt með Sigga á vaktinni! Hann var rétt í þessu að tala um einhvern draugagang í skóbúðinni.Þar væri reimt! Eitthvað líka um ''svipuð hús'', þ.e.a.s. þar sem krufning færi fram o.sv.fr. Við bullum út í eitt, þegar færi gefst, að sjálfsögðu.Þetta var ég undirstrika við ''búddistann'', sem við köllum,félaga okkar á næturvaktinni í kvöld.Hann er allur að koma til, er farinn að skilja loks, þennan húmor.Annars er allt í einu nú nóg að gera... |
| Posted by Sperran at 5:22 AM - Comments [0] |
|
 | | Monday February 20, 2006 |
Sunnudagurinn.
Skrapp í heimsókn í Völvufellið á laugardagskvöldið,sátum þar þrjú fram á nótt að sötra öl og eitthvað var borið í mig af drykk sem á rætur að rekja til Skotlands og legið í ámu í tuttugu ár. Heilsaðist ekkert of vel daginn eftir.Þeim svíður,sem undir míga! Hafði þó af stað í kaffi og boltaáhorf á þann sama stað og renndi svo að því loknu upp á völl, að heimta Egyptalandsfarana.Kom þeim hjónum til síns heima, áður en skroppið var í afmæliskaffi hjá systir í Kópavogi.Drattaðist heim, en sökum óheyrilegs slappleika, ákvað ég að melda mig of lasinn til að mæta á vakt.
|
| Posted by Sperran at 11:59 PM - Comments [0] |
|
 | |