 |
|
| miðvikudaginn 04. janúar 2006 |
Háð eða háð ??
Eitthvað finnst mér það alltaf hljóma ótrúverðulega þegar eyrnamerktir pólitíkusar ryðjast fram og tjá okkur sauðunum að nú ætli þeir sér að gerast "óháðir" en samt þó þannig að þeir vilja áfram sækja í völdin......
Mér varð hugsað til þessa þegar Björk Vilhelms tilkynnti í dag að hún hygðist yfirgefa VG og "ganga" til liðs við Samfylkinguna án þess þó að "ganga" til liðs við hana en samt að taka þátt í prófkjöri og reyna þannig að ná öruggu sæti og sitja áfram í borgarstjórn RVK.....hversu vitlaus telja þessar vesalings manneskjur sem svona vilja sigla lygnan sjó að við kjósendur séum mér er spurn????
Ef einhver töggur er í fólki í pólitík þá stundar það hanaá þeim garða sem það hefur um árabil markað sér og tekur þannig slaginn en lyppast ekki niður þegar á móti blæs í brimgarðinum og stendur þannig trúverðugt og traustvekjandi og lætur okkur hin dæma sig af verkunum......
Nú tek ég það fram að BV er alls ekki eini pólitíkusinn sem þetta á við um, fleiri hafa jú farið þessa leið og yfirleitt hafa svona siglingar endað illa, en kannski er ég bara svekktur því að mér hefur alltaf þótt mikið til hennar koma en sennilega á það fornkveðna hér við.... það virðist alltaf vera sama rassg..undir öllu þessu fólki þ.e. völdin heilla meira en nokkuð annað.........
Skrifaði skeleggur vesturbæingur klukkan 2:02 | Einn bregst við [ Skoða ~ þú líka? ] |
|
| fimmtudaginn 15. desember 2005 |
Óknyttadrengir eða prakkarar???
Oft er talað um að manni hefnist fyrir þetta eða hitt og óhlýðni oft tiltekin og manni sagt hefnast fyrir hana, þetta rifjaðist upp fyrir mér þegar við vorum að ræða um nokkur bernskubrek strákarnir og sérstaklega þegar við höfðum komist yfir mikið magn af skotum(tekin ófrjálsri hendi til notkunar) í forláta kindabyssu sem notuð hafði verið lengi í sláturhúsinu.....
Við notuðum gjarnan skot þessi og sprengdum með hamri eða öðrum öflugum bareflum og þennan dag var ákveðið að fara í leiðangur út í Liverpool og þar átti að sprengja mikið og Jonni litli bróðir Bigga bjúgutittlings sem var nokkru yngri en við hinir vildi endilega vera með í "leiknum" en Biggi sagði honum að hunskast í burtu en einhvern vegin þá æxlaðist það þannig til að hann flaut með og við út í Liverpool.....
Ekki höfðum við verið lengi að við sprengingarnar þ.e. við röðuðum upp u.þ.b. 50 skotum í línu og síðan var gengið á línuna og barið með hamri og sprengt í gríð og erg, allt í einu þá rak Jonni litli upp öskur og greip um miðsvæðið og byrjaði að gráta hástöfum og hoppaði fram og aftur og fljótlega fór að bera á blóði í gegnum buxurnar og hljóp hann heim á leið og við á eftir en Biggi bjúgg kom honum svo heim og við stóðum eftir nokkuð brugðið......
Síðar um daginn þá hittum við Bigga bjúgg aftur og spurðum hann frétta af Jonna litla og þá hafði hann fengið stálflís úr skoti í pokan litla sem hvílir undir "fermingarbróðurnum" og flísin rist skurð(sem skýrði allt blóðið) sem síðan þurfti að sauma með 6 sporum og við létum í ljós áhyggjur af líðan hans og urðum nokkuð smeykir um hirtingu eða jafnvel afskifti löggunar, Biggi bjúgg forhertur að vanda var snöggur uppá lagið og svaraði að bragði, honum var nær að hlýða og vera ekki að elta okkur honum hefndist bara fyrir........
Ég tek það fram að þetta var nú ekki daglegt brauð að við værum að "stela" skotum til sprenginga og við yfirleitt lítt til vandræða með okkar uppátæki, þó svo þar væru jú undantekningar.......en hvort manni hefnist fyrir óhlýðni held ég ekki Jonni litli var bara óheppinn þann daginn...............
Skrifaði skeleggur vesturbæingur klukkan 23:23 | Engin viðbrögð [ þú? ] |
|
| þriðjudaginn 13. desember 2005 |
Stefna eða stefnuleysi.....
Umferðin í henni Reykjavík er eitthvað sem er í sífelldri umræðu og af ýmsu að taka, ég er einn þeirra sem stend sjálfan mig að því ða bölva stundum og blóta hressilega yfir aksturslagi manna en eflaust er ég ekki barnanna beztur þegar kemur að akstursgæðum....
Eitt er það sem ég kemst þó aldrei yfir og sem er það sýnilega álit alltof margra að stefnuljós séu fyrst og fremst dýr aukabúnaður á bílum sem ber að fara sparlega með fyrir nú utan það að fólki finnst greinilega ástæðulaust að gefa öðrum nokkuð það til kynna sem auðveldað gæti nú umferðina með þeirri vitneskju hver næstu skref næsta bíls verða........
Þarna finnst mér að Umferðastofa hafi verðugt verk að vinna í einhverri af næstu herferðum sínum, herferðir þeirra undanfarin misseri hafa jú heldur betur náð að ýta við manni og þarna finnst mér þeir gætu komið sterkir inn og um leið liðkað fyrir umferðinni með flottri auglýsingaherferð..... sem hittir í mark....
Skrifaði skeleggur vesturbæingur klukkan 1:01 | Engin viðbrögð [ þú? ] |
|
| mánudaginn 12. desember 2005 |
Einar Oddur er jólasveinn..........
Þegar menn eins og Einar Oddur Kristjánsson stökkva fram og æpa með látum að Reykjavíkurborg sé að gera rangt með því að hækka laun starfsfólks á barnaheimilum, elliheimilum og öðrum umönnunarstofnunum, þá fær maður sama óbragð í munninn eins og svo oft áður þegar þessi söngur hefur heyrst úr þeirri átt...
Ekki veit ég nákvæmlega hver laun EOK eru en þingfararlaun hans eru örugglega á því bili að hann er að borga í skatta á ári tvöföld laun Ófeigs frænda sem starfar á Grund fyrir u.þ.b. 110 þús kr.á mánuði við það að sinna Gunna gamla frænda EOK og mér þætti gaman að sjá EOK rölta við á Grund nú þegar þingmenn eru komnir í 6 vikna jólafrí og halda því fram við Gunna frænda að laun Ófeigs sem stundum þarf að mata hann eftir að hann hefur baðað hann, séu völd að því að verðbólga og vextir eigi eftir að rjúka upp á næstu misserum sökum ábyrgðarleysis Reykjavíkurborgar og Eflingar í launamálum...........
Þessi helvítis söngur eilíflega um ábyrgð launafólks sem er með þetta 100-140 þús.kr á á mánuði í laun fer alltaf jafn mikið í taugarnar á mér en segir þó miklu meira um menn eins og EOK og hversu lítið vit eða þekkingu þeir hafa á þessu svokallða hagkerfi ....og er furða þó maður spyrji sig hverjum ætlar "Bjargvætturinn " EOK að bjarga með svona vitleysis tali???
Skrifaði skeleggur vesturbæingur klukkan 1:06 | Engin viðbrögð [ þú? ] |
|
| laugardaginn 10. desember 2005 |
Af brúnum eggjum........
Ég aldrei þessu vant, rak upp stór augu þegar það kom sem merkileg frétt á Stöð 2 í kvöld að nú væru í boði brún hænuegg á Íslandi og það var á fréttini að heyra að þvílíkt og annað eins hefði ekki átt sér stað í áratugi....
Ekki það að ég sé neinn "fræðingur" í varpi hænsnfugla á Íslandi en ég minnist þess þó að við héldum 10-12 hænur þegar ég var krakki og unglingur og þær urpu allar brúnum eggjum og voru þær aldar á venjulegu korni og heimilisúrgangi sem til féll, reyndar þá fannst mér þetta hljóma á Stöð 2 eins og einhver undur og stórmerki og þar að auki að þetta væru hálfgerð "undraegg".....
Eitthvað finnst mér þetta vera í ætt við gúrkutíð fjölmiðlana en minnist þó dagana góðu þegar ég hirti hænurnar okkar og síðar þegar ég var sökum veru minnar í Loðmundarfirði sem gutti, fengin til að slátra hænunum við mikla athygli félaga minna sem fylgdust með fullir aðdáunar í hænsnasláturtíðinni forðum.....
Skrifaði skeleggur vesturbæingur klukkan 19:07 | Einn bregst við [ Skoða ~ þú líka? ] |
|
| fimmtudaginn 08. desember 2005 |
Þrátt fyrir og ef að, þá var.....Lennon Everton maður
Skrýtið hvernig möppudýrunum tekst alltaf að horfa framhjá staðreyndum þegar kemur að umræðunni um kjör aldraðra og öryrkja, Stefán Ólafsson heldur því fram í skýrslu sinni um kjör þeirra að þau séu ansi bágborin og það með ýmsum rökum....
En nú sem fyrr bregðast menn í ráðuneytum viðkomandi málaflokka við með skætingi og halda hinu gagnstæða fram og eru þar með að halda fram allt öðrum veruleika heldur en blasa við skjólstæðingum TR, reyndar ekkert nýtt þar.....
Lennon var hetja og er ennþá hjá stórum hluta fólks sem í dag er á miðjum aldri og ég er einn þeirra sem hreifs af kappanum sem gutti þó svo Harrison væri minn maður alla jafna, maður sá þessa menn í sama dýrðarljóma og aðrir og skyggði þar lítið á....
Í kringum dánardægurafmælið þá hefur farið fram umræða um persónuna Lennon og eins og svo oft áður þá er glansmyndin orðin ansi mött og eflaust er það þannig með allt þetta "fræga og fallega" fólk, ekki það að þegar menn eru dauðir þá má oft satt kjurrt liggja því hvort Lennon var skíthæll eða ekki þá var hann flestum snjallari í rokkinu....
Skrifaði skeleggur vesturbæingur klukkan 23:43 | Engin viðbrögð [ þú? ] |
"Má glys" eins og Nonni frændi orðar það........
Sperran kítttlllaði mig svo um munar svo ég kítla líka.
Sjö hlutir sem ég stefni að með viljan einan að vopni.
1.Þola betur fáfræði..... . 2.Að verða betri en ég er.... 3.Halda áfram leitinni að gullinu...... 4.Verða kannski....... 5.Mannast eins alltaf stóð til..... 6.Sjá Spurs taka titilinn. 7.Búa til betra brauð.......
Sjö hlutir sem ég get.
1.Sungið......... 2.Slegið garða...... 3.Gert rín að öllu...... 4.Mælt kíló af hveiti...... 5.Komið öðrum úr jafnvægi....... 6.Eldað kartöflur nokkuð skammlaust..... 7.Verið óþolandi......
Sjö hlutir sem ég get ekki.
1.Prentað á leður...... 2.Saumað krossspor..... 3.Riðið húsum....... 4.Sofið með opin augu........ 5.Spilað á lútu....... 6.Gert við orgel....... 7.Samið við Gunnarí Krossinum,,,,,,,,.
Sjö hlutir sem heilla mig við hitt kynið.
1.Ljóðræna. 2.Gamansemi í hæfilegum skömmtum..... . 3.Hlýlegur klæðnaður...... 4.Margt smátt........ 5.Eilítil kerksni..... 6.Tedrykkja..... 7.Fallegt enni og brúnir skór.......!
Sjö frægar konur sem heilla mig.
1.Bibba á Brávallagötunni. 2.Dianne Warwick. 3.Rosa Luxemburg. 4.Angela Davis. 5.Mary Poppins. 6.Joan Armatrading. 7.Bernadette McAlliskey.
Sjö orð eða setningar, sem segi oftast.
1.Sko þetta er búið (þegar liðið mitt er að tapa)! 2.Sendu mér "mail"! 3.Þú lýgur þessu! 4.Gerum okkar besta! 5.Já þokkalegur! 6.Andskotans vitleysa! 7.Jæja nú er hann alveg farinn!
Sjö manneskjur sem ég ætla að kítla.
1.Ófeigur...... 2.Hugskot. 3.Dóra. 4.Hjalti Már. 5.Snærós(ef hún lifir). 6.Simmi tittur. 7.Afi.
Eða einhvernvegin þannig...............
Skrifaði skeleggur vesturbæingur klukkan 1:41 | Einn bregst við [ Skoða ~ þú líka? ] |
|
| fimmtudaginn 10. nóvember 2005 |
Af seyðfirskum skólabörnum.......
Þetta er tekið af vefsvæði Landhelgisgæslunnar og eru nokkur gullkorn sem féllu þegar grunnskólabörn á Seyðisfirði heimsóttu skipverja á Ægi og skoðuðu skipið undir leiðsögn:
Guðmundur skráði hjá sér nokkur gullkorn sem hann heyrði frá börnunum á meðan á heimsókninni stóð:
Svakalega eru margar tölvur um borð í svona skipi (allir skjáir, radarar og siglingarskjáir flokkaðir sem tölvur).
Þarf svona marga síma á einni skrifstofu (talstöðvar og símtól í brúnni sett undir sama hatt).
Ég ætla sko að verða stýrimaður þegar ég verð stór, það þarf að tala í svo marga síma.
Sævar Már háseti spurði börnin hvernig þeim litist á svona varðskip. Ein stúlkan svaraði mjög skemmtilega: Þetta er svo sem ekkert merkilegt, nokkrar skrifstofur og einn matsölustaður.
Það er greinilega af sem áður var þegar fjarðabúar og varðskipsguttar slógust og oft var tilefnið ekki annað en stelpurnar á viðkomandi stað.......
Skrifaði skeleggur vesturbæingur klukkan 23:52 | 2 bregðast við [ Skoða ~ og þú líka? ] |
|
| mánudaginn 07. nóvember 2005 |
You're an asshole Bush.....
Núna þegar prófkjör Sjálfstæðisflokksins er að baki og Villi "gamli" glaður í bragði sem sigurvegari þá verður gaman að sjá hvað útspil bíður okkar frá Samfylkingunni, VG og "Frjálslyndum" í kosningabaráttunni sem framundan er....
Eitthvað virðist það koma mönnum í opna skjöldu það sem er að gerast í Frakklandi og menn láta eins og það sé að koma mönnum í opna skjöldu, fleiri hafa þó bent á að þetta er eðlileg afleiðing af innflytjendastefnu Frakka, fólk frá Afríku og afkomendur þeirra á greinilega engra annara úrkosta völ því það er deginum ljósara að aðstæður þessa fólks eru víða ömurlegar og lítil von um bót þar á öðruvísi en að menn minni svona hressilega á sig.....
Það hefur löngum verið vitað að maður í sjálfheldu er til í allt og það er greinilega að koma á daginn að hreyfing þessa fólks sem virðist sjálfsprottin sér ekki aðra leið en þessa hversu geðfelld sem fólki finnst hún....
Kíkið á linkinn hér að neðan og hlustið á þetta frábæra lag....
http://www.filmstripinternational.com/index.php?asshole
Skrifaði skeleggur vesturbæingur klukkan 18:37 | Einn bregst við [ Skoða ~ þú líka? ] |
|
| miðvikudaginn 31. ágúst 2005 |
Ætli þau kyrki hvort annað í kirkjunni þar syðra?????
Það skortir ekki kristilegan náungakærleika í Garðabæ og ekki ofsögum sagt af vinahótum og umburðarlyndi í nafni kirkjunnar þar í sókn.......
Trúleysingi eða ekki þá prísa ég mig sælan með þá barnslegu trú að eitthvað gott búi í flestu fólki og sé ekki ástæðu til að blanda því við neitt sem heitir kristin trú eða neitt það sem "himnadraugurinn" frá Nazareth á að hafa staðið fyrir og ríkisstarfsmenn íslensku þjóðkirkjunar boða á tyllidögum....
Skrifaði skeleggur vesturbæingur klukkan 20:32 | Einn bregst við [ Skoða ~ þú líka? ] |
| |