| Thursday, May 19th 2005 |
|
| Ný heimasíða | 5:47 PM |
|
Heimsækið mig núna á BRYNDISISFOLD.COM
Entry posted by Bryndis Isfold Hlöðversdóttir | One note [Add / View] | www | E-Mail this entry |
|
 |
|
| Monday, May 16th 2005 |
|
| Kosningaréttur kvenna tryggður í Kúveit | 8:10 PM |
|
Jæja betra er seint en aldrei eða hvað !
frétt á mbl.is hérna
Entry posted by Bryndis Isfold Hlöðversdóttir | One note [Add / View] | www | E-Mail this entry |
|
 |
|
| Wednesday, May 04th 2005 |
|
| Fyrningafrumvarpid | 8:08 PM |
|
bolvad 'eg finn ekki islensku stafinu a nyju VAIO tolvunni minni en langadi koma thessum sniduga banner fra Jensi a framfaeri...

Entry posted by Bryndis Isfold Hlöðversdóttir | Zero note [Add] | www | E-Mail this entry |
|
 |
|
| Thursday, April 28th 2005 |
|
| Sumarið og framboðið | 3:40 PM |
|
Allar efasemdir um að sumarið ætli ekki að koma eru horfnar. Ég trúi á sumardaginn (sjá neðri færslu)
Með hækkandi sól hefst hin eiginlega kosningabarátta og hef ég hér með lýst því yfir að hún sé hafin. Baráttan eiginlega hefur að vísu hingað til fallið í skuggann á ISG og ÖS en nú eru breyttir tímar. Ég mun svo sem ekkert koma með stórar yfirlýsingar um sameiningu flokka eða tillögu að alsherjar stefnubreytingu á hverjum degi.
Framboð mitt mun einkennast af rósemd og vönduðum vinnubrögðum. Ég veit ekki alveg við hverja ég er að keppa svo ég ætla að spara skítköstin a.m.k. í bili.
Faglegt mat kjósenda mun auðvita ráða úrslitum um niðurstöðurnar en ég legg mig og mín störf í hendurnar á kjósendum.
Kosningamarkmiðið er eitt : að ég komist í framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar
Kosningaloforðin eru mörg
- miklu miklu meira skipurlag hjá skrifstofu flokksins
- auka nýliðun í þáttöku í starfi flokksins
- bæta enn frekar úr fjármálum flokksins
- sinna yngri og eldri flokksmönnum miklu betur
- ýta enn frekar undir málefnastarf á milli landsþinga
- leggja ríkari áherslu á að markmiðum í jafnréttismálum náist í innra starfi flokksins
.........fleiri loforð væntanleg
og þú getur haft áhrif, skráðu þig í Samfylkinguna* ef þú ert ekki þegar skráð/ur og óskaðu eftir að fá að vera landsfundarfulltrúi svo mæturðu í Egilshöll og kýst mig eða einhvern annan í framkvæmdastjórn.
gaman áfram lýðræði !
* sorrý ef þú ert ekki skráð/ur og vilt skrá þig þá færðu ekki að kjósa ÖS eða ISG en hey þú getur kosið Gústa í varaformann og fullt af allskyns liði í framkvæmdarstjórn
Entry posted by Bryndis Isfold Hlöðversdóttir | 4 notes [Add / View] | www | E-Mail this entry |
|
 |
|
| Friday, April 22nd 2005 |
|
| Efasemdir um sumarið | 1:34 PM |
|
Svolítið eins og "brennt barn forðast eldinn" og með mig og sumarið, veit ekki alveg hvort ég eigi að trúa því sem sumardagurinn fyrsti lofar. Yfirleitt er að svik og enn meiri svik þar til í lok júlí. En dagurinn í dag er dagur vonar fyrir sumarið, ég er búin að sjá fjöldann allan af fólki á labbi upp og niður Laugaveginn með ís að spóka sig. Ég er samt ekki sannfærð. Ef þetta endist út helgina ætla ég að byrja að fagna sumri ef ekki þá hef ég fagnaðarlætin ekki fyrr en í lok júlí eins og venjulega.
Entry posted by Bryndis Isfold Hlöðversdóttir | Zero note [Add] | www | E-Mail this entry |
|
 |
|
| Thursday, April 21st 2005 |
|
| Að firra sig ábyrgð og bölvun kvenna | 8:30 AM |
|
"ADAM hvað ertu að gera?" Adam lítur rauðeygður til Guðs. Guð: "sagði ég þér ekki að borða ekki af aldintrénu, nú verð ég að fordæma þig"
Adam : En Guð Eva sagi mér að gera þetta, hún bara rétti mér eplið og ég beit, þetta er henni að kenna" Guð: "Nú já ok, Eva þú ert fordæmd til að ala börn og þjást og Eva mér finnst líka réttast að hann fái að ráða yfir þér, já Eva skamm"
og þannig hefst hin heilaga ritning (bls 2 Bíblían) og upphafið af ójafnrétti kynjanna allt vegna þess að Adam var ekki maður til að taka ábyrgð.
:)
Var í samlestri á biblíunni með séra Jakobi og tilvonandi manninum mínum þegar ég áttaði mig loksins á þessu lykilatriði í kvennasögunni. Ákvað samt að hlífa Kaþólska prestinum fyrir þessari snjöllu uppgötvun lúterþenkjandi brúðarinnar.
Entry posted by Bryndis Isfold Hlöðversdóttir | 2 notes [Add / View] | www | E-Mail this entry |
|
 |
|
| Monday, March 21st 2005 |
|
| New York | 10:41 PM |
|
Starbuckskaffi í annarri hendi nýja fartölvu í hinn ... og löggan á fullu fyrir utan að reyna að troða sér í gegnum umferðina. Stórborgin stórkostlega, svo hrein eftir skrúbbið hans Juliani að ekki eins sinni mýs þrífast lengur á lestarteinunum.
Erum búin að fara á skauta í Central Park, borða froska, horfa á ljósin á Times square og versla.
ekki slæmt !
Gleðilega páska
Entry posted by Bryndis Isfold Hlöðversdóttir | One note [Add / View] | www | E-Mail this entry |
|
 |
|
| Wednesday, March 09th 2005 |
|
| Ingibjörg Sólrún hefur opnað heimasíðu | 3:23 PM |
|
sjá hana hérna
Entry posted by Bryndis Isfold Hlöðversdóttir | Zero note [Add] | www | E-Mail this entry |
|
 |
|
| Monday, March 07th 2005 |
|
| Burt með flugvöllinn | 4:39 AM |
|
ég hef svo sem ekki mikið um málið að segja en það litla sem ég hef um það að segja er "BURT MEÐ FLUGVÖLLINN" þarna á að byggja hús og fjölbýli fyrir fólk. Fólk vill búa miðsvæðis og getur alveg keyrt smá spott til að fara í flug, og hananú og hæna.
Entry posted by Bryndis Isfold Hlöðversdóttir | Zero note [Add] | www | E-Mail this entry |
|
 |
|
| Sunday, March 06th 2005 |
|
| Konur barðar í Tyrklandi af lögreglu | 10:36 PM |
|
Konur sem voru að krefjast aukins réttar síns í mótmælagöngu í Istanbul voru lamdar af lögreglunni þar á bæ. Enn ein ástæða fyrir því að tyrkir eiga ekkert að fá inngöngu í ESB sjá frétt hér
Entry posted by Bryndis Isfold Hlöðversdóttir | Zero note [Add] | www | E-Mail this entry |
|
 |
|