Hugskot
Þriðjudagurinn 6. janúar 2009
dagarnir líða ...
... æða áfram eins og óðar flugur í skammdeginu.

Myrkrið er svart þessa dagana, en ég elska kyrrðina og ylinn sem fylgir stillunni þessa fyrstu janúardaga - súldin er bara sæt á bragðið og gaman að ganga í henni, finna daggarsmáa dropana setjast á andlitið og sleikja svo út um ...

... og svo snjóar bara í Evrópu í fimbulkulda.
Fyndið hvað við erum alltaf á skjön við umheiminn hér norður á hjara ...

skrifaði Hugskot klukkan 0 : 49 | málskot {1}
Senda þennan pistil í netpósti
Föstudagurinn 2. janúar 2009
ég er búin að kúra í kvöld ...
... frá því ég kom heim úr vinnunni!

Búin að kúra undir yndislegu, fallegu og hlýju kúruteppi sem hún vinkona mín færði mér í dag í síðbúna fimmtugsafmælisgjöf, og kúri þar enn með tölvuna í fanginu. Ég veit að hvert einasta spor í þessu yndislega teppi var stungið af fimum og listrænum fingrum og hver einasti bútur sniðinn og saumaður við næsta bút af miklu listfengi, ást og alúð og enginn getur ímyndað sér hvað mér þykir vænt um gjöfina og hugann sem að baki býr.

Þess ber að að geta að þessari vinkonu minni á ég svo margt að þakka. Ég hef áður skrifað um áhrif hennar á líf mitt ... þegar hún dró unglinginn, mig, út úr skelinni og fékk mig til að trúa því að í mig væri eitthvað spunnið. Fyrir þá sem vilja frumlesa eða
rifja upp.

Elsku Villa! Þúsund þakkir fyrir yndislega stund í dag og dásamlega gjöf! Látum ekki líða langt þar til við hittumst næst!

skrifaði Hugskot klukkan 23 : 57 | málskot {2}
Senda þennan pistil í netpósti
Miðvikudagurinn 31. desember 2008
Veit ekki af hverju mér datt þessi mynd í hug ...
... varðandi áramótatexta.

... en hún er litrík
og í henni eru ævintýri, út og suður, inn og út og í gegnum glerið
(ef grannt er skoðað)!

... þar má finna hús og fataslár, skrautmuni, ljós og myrkur, ævintýri og vonir sem ég ímynda mér að muni á miðnætti klæðast dansskónum með bleiku slaufunni ... og tjútta á tánum á vit gleðinnar!



Eltið draumana, mínir kæru vinir!

Ég sendi ykkur mínar bestu óskir um gleðiríkt ár
og takk fyrir allt gott - hlýjar kveðjur, hugsanir og samverustundir!

Í nótt munu álfar dansa í hverjum hól - þótt í mannheimum teljist það dyggð:
að ganga hægt um gleðinnar dyr og gá að sér

... en það er þó alveg víst að draumar eru sífellt að rætast!

skrifaði Hugskot klukkan 14 : 52 | málskot {5}
Senda þennan pistil í netpósti
Þriðjudagurinn 30. desember 2008
svaf á gaddaboltum í nótt ...
... stillti þá af þannig að þeir mýktu þá vöðva sem gerðu mig að hálfgerðum krypplingi eftir nuddvinnu gærdagsins. Fann til í flestum þeim vöðvum sem ég er að mýkja hjá nuddþegum mínum. Veit nákvæmlega hvernig flestum þeirra líður þegar þeir koma til mín og hef það að markmiði að bæta líðan þeirra.

Þarf þó eitthvað að huga betur að minni eigin líkamsbeitingu ...

... þyrfti nudd

skrifaði Hugskot klukkan 9 : 05 | málskot {1}
Senda þennan pistil í netpósti
Föstudagurinn 26. desember 2008
Yndisleg jól ...
... í hóflegu annríki. Dæturnar yndislegu voru allar í mat hjá mér á aðfangadagskvöld og svo kom stórfjölskyldan í hangikjöt á jóladag. Ég þurfti reyndar að snúa litlu íbúðinni minni á hvolf og fá lánuð bæði borð og stóla til að allir gætu setið við langborð - en "bjóðið" var vel lukkað og meiriháttar að ná öllum saman, vegna þess að við hittumst ekkert of oft öll

... jólin eru tíminn ...

Við mamma fengum okkur svo göngutúr niður að Tjörn í dag, þar var mikill svanasöngur, bægslagangur, vængjasláttur og slagur

... enginn kærleikur í brauðstritinu á þeim bænum!

skrifaði Hugskot klukkan 16 : 56 | málskot {2}
Senda þennan pistil í netpósti
Þriðjudagurinn 23. desember 2008
Þorláksmessukvöld ...
... er um það bil að mæta aðfaranótt aðfangadags í þessum skrifuðum orðum! (orðalagið er einhvers konar aðferðafræði - eða aðfararfræði - kannski gerir Þorlákur helgi aðför að jólunum með úrhellisrigningu
(... mikið getur hún bullað konan).

Rakst áðan á vinningssmásöguna mína á vef SFR Þið getið kíkt á hana - kannski hafið þið gaman af henni - hún er stutt og fljótlesin ... og kannski ekki verri jólasaga en hver önnur.

Og úti grenjar rigningin á gluggann minn, alveg eins og á glugga konunnar í sögunni ... það er eins og stemningin við söguritunina sé endurvakin í kvöld!


skrifaði Hugskot klukkan 23 : 03 | málskot {6}
Senda þennan pistil í netpósti
ég hangi hérna yfir tölvunni ...
... dauðuppgefin eftir ótrúlega erilsaman dag!

Og ég skil ekki af hverju ég er ekki ennþá búin að gefa þreyttu augunum, þreyttu handleggjunum, þreyttu fótleggjunum (og öllum hinum þreyttu líkamshlutunum) hvíld ...

... og þó!

... líklegasta ástæðan er sú, að ég kem mér ekki að því að tölta fram á bað og bursta tennurnar, nenni ekki að fara úr fötunum, nenni ekki að standa upp ...

... og svo nenni ég engan veginn að taka rúmteppið af bólinu mínu!

Hangi því hér
... en hangikjötið verður soðið á morgun!

skrifaði Hugskot klukkan 0 : 12 | málskot {1}
Senda þennan pistil í netpósti
Sunnudagurinn 21. desember 2008
Tók mér tak og fór í enn eitt verkefni sem hangið hefur yfir mér ...
... mánuðum saman. Taldi dósir og flöskur í eina 10 svarta ruslapoka, ætli þetta sé ekki hátt í 2ja ára birgðastaða af flöskum og dósum og greinilegt að mikið hefur verið svolgrað af drykkjarvöru á ákveðnum tímabilum.

Malt- og appelsíndósirnar vöktu endurminningar um liðin jól ...
... en aðallega var þetta fremur fúl og þreytandi talningarvinna og bogrið gerði mig þreytta í bakinu.

Verst að ég var orðin of sein til að skottast og ná í bílinn sem ég fæ lánaðan til að koma pokunum í Sorpu, svo ég sit uppi með stafla af svörtum plastpokum í eldhúsinu mínu þangað til á morgun, ekki mjög huggulegt og fremur fúl jólastemning í litlu íbúðinni minni sem stendur ...

... annars langar mig að segja eitt, sem ég er hrædd um að verði túlkað sem vanþakklæti, en ég ætla samt að láta vaða:

Mikið óskaplega leiðast mér þessi rafrænu jólakort sem streyma til mín þessa dagana ... ég er nefnilega svolítið hrædd um að jólakortabunkinn verði þunnur og það er svekkjandi vegna þess að sú stund þegar ég sest niður, seint á aðfangadagskvöld með bréfahnífinn og jólakortin mín hefur verið mín heilagasta jólastund ... og rafræn hreyfimynd er ekki málið fyrir mig, vegna þess að ég ætla ekki að lesa rafræn jólakort af tölvuskjá við jólatréð á aðfangadagskvöld!

skrifaði Hugskot klukkan 17 : 23 | málskot {3}
Senda þennan pistil í netpósti
Þriðjudagurinn 16. desember 2008
Afrek unnin ...
... á síðustu 48 stundum.

Blaðastaflar og bókastaflar hafa fengið yfirhalningu auk þess sem ég er búin að aftengja og henda út öllum þeim raftækjum sem hafa gefið upp öndina á síðustu mánuðum, þar má telja Iriver spilara, DVD tæki, myndbandstæki og annað eldra og enn ónýtara DVD tæki. Sem stendur er sjónvarpsskápurinn minn tómur, en ofan á því trónir enn stóra United sjónvarpið, sem var ódýrasta tækið í búðinni fyrir fjöldamörgum árum - og dugar enn til síns brúks. Það er voldugt sjónvarpstæki, sem enn er vel horfandi á og auk þess svo merkilegt að vera eini hluturinn í minni eign sem ég get ekki borið einsömul, öllu öðru get ég að minnsta kosti bifað!

Enn fyrirfinnast blaðastaflar og fánýtt pappírsdrasl í skúffum og skápum; ótrúlegt hvað þetta safnast upp hægt og hægt - maður gæti haldið að kynlegir pappírar stunduðu það að eðla sig og ala af sér óbermi sem fylla skúffur og skúmaskot þar til allt springur utan af þeim - ætti kannski að henda nokkrum smokkum með í skúffurnar ...

... nei, enn er ég farin að bulla!

Ég er líka orðin þreytt, vegna þess að auk tiltektar hef ég jólaskreytt alla íbúðina, bakað key-lime-pie og lasagne og hvítlauksbrauð, lokið við að frímerkja og senda frá mér öll jólakortin sem til stóð að póstleggja ... haldið saumaklúbb með frábærum vinkonum sem náðu allar að mæta, nema elskan sem býr í Svíþjóð og er oft illa fjarri góðu gamni (knús á hana).

Dásamlegur dagur að baki og mikið var notalegt að stússast allt þetta með stóru stelpuna í talfæri allan liðlangan daginn ... maður er manns gaman!

Framundan eru fáeinir nudd-dagar ...
... og svo kemur langþráð frí - jólafrí ... jejeje

skrifaði Hugskot klukkan 23 : 24 | málskot {5}
Senda þennan pistil í netpósti
Sunnudagurinn 14. desember 2008
komin í jólafrí
... frá skólanum. Kvaddi skólafélagana með kurt og pí síðustu nótt eftir meiriháttar jólafagnað í lok skemmtilegs nudd-dags. Er svo búin að vera að letihaugast hér heima fyrir í allan dag - horfandi á draslið í hornunum, hugsandi um skúmaskotin og rykrotturnar sem sitja þar glottandi. Uppi á borðum eru bóka og blaðstaflar sem erfitt er að finna stað í stappfullum bókahillum, sumt þarf líka að sortera og mörgu má eflaust henda.

En það er svo skrítið að þótt ég horfi á dótið og draslið stíft og ákveðið af einstakri einbeitni, þá bregst það bara alls ekki við og lætur sig hverfa ...

... ég þarf greinilega að þjálfa betur upp hugarorkuna!

skrifaði Hugskot klukkan 16 : 35 | málskot {1}
Senda þennan pistil í netpósti
Mánudagurinn 8. desember 2008
Löng vinnuhelgi að baki ...
... strembin skóla- og vinnuvika framundan - en allt er þetta svo ljómandi ágætt og bráðum koma jólin, þótt lítið verði þau undirbúin og smákökuilmurinn á mínu heimili kemur úr búðarboxum

... enn sem komið er.

Í stað þess að standa og baka eins og heiðvirðar íslenskar húsmæður hafa tamið sér í gegnum árin, sit ég fyrir framan skjáinn og vinn með ljósmyndir, föndra með ljóð og texta ... og hef gaman af.

Ég reikna ekki með að birta í bili fleiri myndir úr helgarferðinni til Víkur, en vísa á Flickr vefinn minn svo finn ég mér vonandi fljótlega tíma til að föndra með nýrri myndir - þær voru ósköp fallegar sem ég hafði upp úr krafsinu úti í Skerjafirði um þarsíðustu helgi ...

... og rykið safnast upp í rólegheitum og felur sig í rökkrinu (ég læt sem ég sjái það ekki ... og leikurinn minnir mig á feluleikina við dæturnar í den, þegar þær skriðu í skúmaskot, undir sófapúða og bak við gardínur).

skrifaði Hugskot klukkan 23 : 58 | málskot {1}
Senda þennan pistil í netpósti
Laugardagurinn 6. desember 2008
ég var á leið heim úr vinnunni í kvöld ...
... búin að ákveða að kaupa mér bland í poka og hafa það kósý fyrir framan sjónvarpið. Sjoppan er nálægt blómabúðinni, rétt hjá strætóstoppustöðinni og því upplagt að nota biðtímann í að velja eitthvað fínerí til að kjamsa á ...

... fyrir utan blómabúðina hitti ég kunningjakonu og við fórum að spjalla, spjallið dróst á langinn, sjopputíminn brann upp og loks stökk ég af stað til að missa ekki af vagninum.

Ég stóð við gangbrautina á leið yfir götuna þegar sportbíll kom á blússandi fart, smellti sér ofan í poll og gaf mér dásamlega sturtu kryddaða örlítilli tjöruangan ... ég þurrkaði mér í framan með treflinum, sleikti saltið af vörunum og hélt mína leið yfir götuna

... með maskarann lekandi niður kinnarnar
(nei það er lygi, ég málaði mig ekki í morgun) ...

... hélt heim á leið
... og ekkert svo leið ...
... þótt ég væri ekki með neitt bland í poka

skrifaði Hugskot klukkan 22 : 53 | málskot {1}
Senda þennan pistil í netpósti
Föstudagurinn 5. desember 2008
ég er í skýjunum ...
... var að koma heim úr verðlaunaafhendingu þar sem ég fékk 1. verðlaun í smásagnasamkeppni. Smásagan verður birt í SFR blaðinu sem prentað verður í næstu viku.

Mesti heiðurinn var að fá meiriháttar hrós frá Þorvaldi Þorsteinssyni rithöfundi og sérlegum hvatamanni þess að ástunda skapandi skrif og hugsa út fyrir rammann. Hann sagði mér að dómnefndin hefði aldrei verið í vafa og að dómnefndarfólk hefði skipst á að lesa kafla úr sögunni hvert fyrir annað, til að njóta bútanna eins og konfektmola. Hann hefði síðan skoðað hana rækilega orð fyrir orð og sagðist muna marga hluta úr sögunni vegna þess hversu rosalega myndrænir þeir væru. Hrósið var þvílíkt að ég roðnaði, en fann líka aukið glit gleðinnar í augum mínum (mátti til að nota tækifærið og vera svolítið skáldleg í tilfinningalýsingum ;)

Í lokin sagði Þorvaldur mér að eftir ítarlega skoðun hefði hann sett spurningarmerki við eitt orð í allri sögunni, engu öðru hefði verið ofaukið.

Er hægt að hafa það betra og er nokkur furða þó ég sé montin?

(ekki síst eftir dóm Árna Matt í Lesbókinni um síðustu helgi, sem gaf ljóðabókinni minni tvær stjörnur, þar sem hann sagði að vissulega væri í henni að finna prýðisljóð, en dómsuppkvaðningin var: "Of mikið").

Í dag er góður dagur og útgáfuteitið verður í kvöld kl. 18-20 í Gunnarshúsi að Dyngjuvegi 8. Vonast eftir að sjá ykkur sem flest :)

skrifaði Hugskot klukkan 11 : 09 | málskot {7}
Senda þennan pistil í netpósti
Mánudagurinn 1. desember 2008
Útgáfuteiti vegna ljóðabókarinnar minnar ...
... og annarra útgefinna Nykur-bóka á árinu, verður haldið í Gunnarshúsi, Dyngjuvegi 8 (húsi Rithöfundasambandsins) næstkomandi föstudag klukkan 18-20. Ég hefði gaman af að sjá í því góða húsi bloggvini mína og aðra iðna blogglesara (líka laumulesara)

... og sem flesta þá sem líkar við ljóðin mín!

Eitthvað mun verða um upplestur, auk þess verður unnt að væta kverkar svo talandinn haldist mjúkur, mildur og liðugur.

skrifaði Hugskot klukkan 22 : 11 | málskot {3}
Senda þennan pistil í netpósti
Laugardagurinn 29. nóvember 2008
þetta er myndin sem ég var að tala um ...
... mér finnst hún svo ótrúleg að ég hef verið hálf feimin að birta hana. En svo kom þessi þörf, núna skyndilega um miðja nótt. Vona að þið njótið með mér:

holding earth

skrifaði Hugskot klukkan 2 : 19 | málskot {7}
Senda þennan pistil í netpósti
gestabók
Hugskots


Oft er rósalitur á rótfúnu grasi!

-- ísl. málsháttur

Ljóðabókin mín:


Uppsveifla/Niðursveifla.
Höfundur er Þorgerður Mattía.
Útgefandi Nykur.
ISBN: 978-9979-9850-2-0.



uppáhaldsbloggin:
Eðalmenn..:
Afi
...og kvinnur:
Hörpublogg
Baunsla mín
Blindan
Anna.is

þessi les ég reglulega
(eða öðru hverju):

Stjúpbauni
Ármann Jakobsson
Sperran
Ingó
Guðný Pálína
Tóta Pönk
Farfuglinn
Syngibjörg
Nanna
Silfá
Sápuóperan
Parísardaman
Barbie
Ameríkufarinn
Mamma ameríkufarans
Tónskáldið
Beggi(dot)com
Kalli - hinn eini sanni
Langi Sleði
Tóta litla

... og skáldið:
Kristín Svava



January 2009
S M T W T F S
1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31


eldri efnisskrár
...... í tímaröð


Leitarvél fyrir pistlana mína

úrval úr gömlu bloggi
júní-júlí 2003


svo á Hugskot nokkur ljóð
á ljóð.is


... og myndir á Flickr.com

Skrifa nýjan pistil


Viltu senda mér póst ?



067911

RSS slóðir í dagbókina:
RSS.091
RSS 1
RSS 2

online


copyright © Hugskot
2003-2008

*fara efst í dagbók Hugskots*



copyright © Hugskot 2003-2008

Allt efni á þessari vefsíðu er verndað af ákvæðum höfundalaga.