Hugskot
Síðustu dagar hafa einkennst af miklu annríki ...
Síðustu þrjá daga hefur heilbú mitt glímt við gömul og spennandi austurlensk fræði - sem eru ný fyrir mér og ótrúlega skemmtileg.  Öll þessi þekking opnar nýjar víddir ... eykur skynjun, skilning og innsæi.  Það er svo gaman að vera, eins og ég, svona svolítið seinþroska og eiga allt þetta góða eftir, geta bætt við mig þekkingu og vísdómi.  Og það sem er best við skólann er hvað kennararnir eru hver öðrum betri, einstök orkubúnt með brennandi hugsjónir og áhuga á sínum fræðum.  Allir koma þeir til okkar með opinn hugann, lausir við fordóma gagnvart annarra fræðum og svo er nemendum gefinn kostur á að læra öll þessi ólíku form ... leika með þau og notfæra sér í "praxís" ... þannig að öllu er unnt að flétta saman!
... og það er þetta sem er svo skemmtilegt.  Að geta nýtt sér þekkingu og kunnáttu sem kemur úr ólíkustu áttum og notfæra sér það besta úr hverju og einu, flétta þræðina saman í reipi ... og vita hvort það heldur - ef það dugar ekki má rekja upp og flétta saman aftur ...  ný þekking bætir alltaf einhverju spennandi við og styrkir reipið ... og í þessu fagi er sífelldur hvati að gera betur!
Nuddskóli Íslands gefur nemendum möguleika á að þróa sig í að verða í "toppklassa" heilsunuddarar - og það er bara tær snilld.
veit ekki hvort tunglið á rósalituðum himni fylgir mér ...
ég er svo heppin ...
... bensínverði
... bílatryggingum
... bifreiðagjöldum
... viðgerðarkostnaði
... bifreiðaskoðun og skoðunargjöldum
... verðfalli og úreldingum
... því að einhver stingi af eftir árekstur
(og skilji mig eftir í skuldasúpunni)
... að finna ekki bílastæði í hverfinu mínu
... að skafa rúður
... að skipta um dekk
... að spóla úr stæði
... að missa stjórn í hálku
... að grafa bíl úr snjóskafli í myrkasta skammdeginu
... af árshátíð
Móttaka var frá klukkan 17:30 í húsi félagsins, þar sem boðið var upp á bjór og nornaseið sem skapaði stemningu og lofaði góðu um að gott kvöld væri í vændum.  Ekkert nasl var í boði með drykkjunum.  Bjórinn kláraðist á fyrstu metrunum og síðustu dropar nornaseiðsins líka áður en haldið var út í rútu um sjöleytið - ekki það að stíft væri drukkið, innkaupin voru einfaldlega af nánasartaginu.
Eftir um klukkustundar akstur var vísað til borðs í dimmum og drungalegum sal þar sem ekki var búið að huga að neinni niðurröðun veislugesta á borð.  Ringlaðir gestir gengu um og reyndu að hliðra sætum til að geta setið með sínum vinnufélögum.
Við komu í húsið varð strax ljóst að af þremur kvennaklósettum var eitt stíflað.  Veislugestir voru vel á þriðja hundrað.  Ekki var þjónað til borðs, alla drykki þurfti prúðbúna fókið að sækja sjálft á barinn þar sem stúlkur á fermingaraldri sem lítið kunnu til verka, afgreiddu vín og drykkjarföng til gesta.
Enginn var veislustjórinn, engin gamanmál, engin skemmtiatriði og enginn matur barst á borð fyrr en um tíuleytið um kvöldið, en þá voru garnirnar farnar að gaula svo hátt að ef einhver tónlist hefði verið spiluð hefði garnagaulið trúlega yfirgnæft hana, nornaseiðurinn frá því fyrr um kvöldið var auk þess farinn að valda mörgum manninum höfuðverk, auk þess sem hrár salurinn einkenndist af bergmáli og glymjanda.
Svo upphófst dagskrárliður númer 1-2 og 3, upplestur á happdrættisvinningum sem tók lungnann af kvöldinu, númerupptalning sem glumdi í eyrum ... endalaust ... endalaust.  Sú dagskrá varð eftir það eingöngu rofin af gömlum kalli sem kom upp á svið af og til og sagði draugasögur ... fínt fyrst ... en leiðigjarnt við ítrekaðar endurtekningar.
Hljómsveitin kom í hús um tíuleytið, en komst ekki að á sviðinu fyrr en um tólf, vegna hörmungar talnaþulu happdrættisins. Þegar á reyndi var tónlistin var bara nokkuð góð og lofaði góðu um framhaldið.  Við vorum byrjuð að tínast út á gólf og dilla okkur, þegar öllu fólkinu var með látum smalað út í rútur  - heim skyldi halda - tuttugu mínútur eða svo liðnar af balli ...
... eflaust varð þetta svona endasleppt vegna hallærisástandsins á barnum, nánast ekkert vín eftir (ein sort held ég).  Um það leyti sem gamanið var að hefjast, var öllu slúttað ... og heim haldið í öllu fína pússinu.  Ég í svarta kjólnum, geðveiku sokkabuxunum og nýju skónum ... sem ég vona að fái annað og betra tækifæri áður en langt um líður.
Ég mæli ekki með árshátíð sem Svæðisskrifstofa fatlaðra skipuleggur - og mæli ekki með Draugasetrinu á Stokkseyri sem veislustað.
Ég klæddist í kjól fyrir rúmum 2 árum ...
Rölti í bæinn af því mig vantaði belti á kjólinn, rambaði á það í "notað-og-nýtt-verslun"  keypti svo algjörlega "geðveikar" sokkabuxur, með þvílíku munstri að ég hef aldei séð flottara ...
... en auðvitað átti ég enga elegant skó við sokkabuxurnar.
Var á leiðinni heim veltandi vöngum um mögulega úrlausn mála, þegar ég gekk framhjá kjallaraglugga og sá slatta af skókössum á útsöluborði, gekk út með síðast parið af mega-Gaborskóm, sem reyndust vera akkúrat í mínu númeri og kostuðu bara 5 þúsund kall!
... svo nú get ég virkilega látið mig hlakka til árshátíðarinnar
- en bruðlinu er hér með hætt
... litun og klippingu fékk ég í skiptivinnu
... og nudda upp í hitt í næstu viku
... annars stóð í tarotspilunum sem lögð voru fyrir mig um síðustu helgi, að peningurinn væri á leiðinni, svo ég bíð bara eftir því að hann detti inn á bankareikninginn minn.  Er það ekki svo algengt þessa dagana?
Ég held ég sé loksins komin á rétta hillu ...
Menntunin sem ég er að elta núna er bæði góð og gefandi.  Gaman að láta fólki líða vel ... og rosalega góð tilfinning að vera valdur að því að heilsufarið batnar og bestu launin eru vitaskuld þau að uppskera þakklæti, þó smá þóknun komi sér líka vel í matarkaupunum á þessum síðustu og verstu ... en ekki eru þau há nemalaunin.
Máltækið "heilbrigð sál í hraustum líkama" er í fullu gildi, andinn lyftist og eflist ef líkaminn er heill og verkjalaus - það er ótrúlega gaman að upplifa!
Og fullar sáttir eru að takast milli mín og "bóksalamafíunnar" eins og ég orðaði það í ergelsi mínu ... vondu klásúlurnar verða felldar út og bókin verður fáanleg í bókabúðum á meðan birgðir endast.  En hana má að sjálfsögðu líka nálgast hjá mér, ef ég fæ örlítið fleiri eintök til að höndla með.
dagurinn hófst í morgunsárið með lasagne lögun ...
Hvarf að heiman og átti súper skemmtilegan og öðruvísi dag með frábærum konum sem gaman var að kynnast, sumar spáðu í spil - og horfðu til framtíðar, allar voru þær hver annari fallegri og yndislegri og öllum var þeim eitthvað mikið til lista lagt.  Ein fegraði neglur og er þá fátt eitt talið sem sú kann ... ég nuddaði axlir og las ljóð.  Nú veit ég og trúi að framtíðin brosir við mér ... segi ekki meir, segi ekki meir.
Kom svo heim og kom lasagne-inu í ofninn, bjó til salat og bakaði brauð ... átti skemmtilega kvöldstund með stærri stelpunum og kærasta miðjustelpunnar sem ég fékk loksins að sjá ... sætur strákur
... og svo tveimur mánuðum síðar ...
... einmitt!  Hvað ef ég flyt og mér láist að láta þá vita?  Enn ein brunaútsalan? ... eða bara áramótabrenna?
Ég er sjálf búin að selja helming lagersins, alveg til í að taka við rest - þetta tutlast út, auk þess sem ég hef meira upp úr ljóðabókinni minni, tekjulega séð með því að selja sjálf.  Það verður þá að hafa það ef kaupendur grípa á næstunni í tómt í bókabúðum.  Bókin verður fáanleg hjá mér (og vegna kreppunnar mun sendingarkostnaður felldur niður) ...
... pöntunum verður sinnt svo fljótt sem auðið er eftir að bækurnar fara að  tínast til baka til mín úr bókaverslunum.  Vitaskuld er Uppsveifla/Niðursveifla besta jólagjöfin, athugið það - lagertalan er á leiðinni niður og ekki ólíklegt að upplagið seljist fyrir jól ... nú er ég í gír!
... eftir þessa niðursveiflu kemur uppsveifla.
Nú ætla ég sem mest að höndla án milliliða, það er vel við hæfi á krepputímum.  Vöruskipti gegn heilsunuddi eða ljóðabók eru góður kostur ... allar hugmyndir þar að lútandi verða skoðaðar af opnum huga ... mágkonu mína nudda ég og fæ fyrir vikið klippingu og strípur.
Bók gegn bók eða geisladisk = jólagjöf
... þannig gerast kaupin á eyrinni!
Hitti tryggingaráðgjafa ...
... en semsagt - nú er ég búin að taka próf í klassísku nuddi og get farið að safna tímum.  Ég verð aðallega að nudda virka daga frá klukkan c.a. 10-15 - en unnt er að semja um aðrar tímasetningar.
Verðið á heilnuddi er ótrúlega lágt - eiginlega bara spottprís (allavega í byrjun ... hækkar eflaust í framhaldinu þegar eftirspurn eykst ... í takt við markaðshyggjuna ;)
Ég las upphátt ...
Fékk þau viðbrögð að ekki væri alveg ljóst hvort um væri að ræða langt og óhefðbundið ljóð eða smásögu.   Stíllinn væri svo ljóð-legur, að allt sem ég skrifaði kæmi út eins og ljóð!
Verst ef maður er fastur í einhverju formi - ég ætti kannski að reyna örlítið að vinna mig út úr því?
... eða ekki!
... kannski ætti ég bara að sætta mig við orðinn hlut
... ég veit allavega að það á ekki fyrir mér að liggja að skrifa skáldsögu - heil ljóðræn skáldsaga væri "too much".
Annars er ég reyndar skotin í knappa forminu.  Ljóðinu sem lýsir tilfinningu eða andartaki.  Ég er líka ástfangin af smásagnaforminu, þar sem unnt er að koma fyrir efni langrar skáldsögu í þjöppuðum og áhrifaríkum texta - ég væri alveg til í að verða ljóðrænn smásagnahöfundur!
En hvað þetta varðar er ég svolítið seinheppin!
Útgefendur vilja skáldsögur.  Ljóð og smásögur eiga ekki upp á pallborðið!  En það gerir ekkert til, ég held áfram að skrifa í frístundum.  Nú er ég búin með próf í klassísku nuddi, hlakka til að læra öll hin nuddformin - og get nú farið að nudda af alvöru ...
öldruð kona í vatteraðri síðkápu
fikrar sig niður þrep
strætisvagns
númer
18
með smellandi mannbrodda
og loðhúfu bundna
undir kverk
á frostköldum morgni
staulast hún fet fyrir fet
yfir hálkubunka
haustsins
í átt að kirkjugarðshliðinu
með staf í annarri hendi
og staka rauða rós
í hinni
Sá hann halla undir flatt á leiðinni út úr hringtorginu ...
- enda í hrókasamræðum
... horfði á hann teygja hægri höndina í innkaupapokann aftur í.  Sá að hann dró fram kókdós, beit í málmhringinn og opnaði hana, hallaði "hallandi-undir-flatt-höfðinu" lítið eitt aftur og fékk sér góðan sopa.  Sá að taumur lak úr neðra munnvikinu.  Horfði á hann færa dósina yfir í vinstri hönd, teygja sig hanskahólfið, draga fram bréfþurrku, þerra munnvikið og jakkann.
Sá hann horfa út undan sér og ná beygjunni með hné á stýrinu.
Fyrir utan gluggann minn ...
Fallegur dagur fyrir morgungöngu ...
andvarinn hvíslar
svo ofurblíður
að ekkert
heyrist
nema
örlítið skrjáf
sölnaðra
blaða
sem snertast
á sofandi greinum
í þessum önnum þunglyndislegra haustdaga ...
Fólk í kringum mig er reitt og sárt ... margir eru sorgmæddir.  Þeir sem hafa lagt lífssparnaðinn sinn í öruggustu hlutabréf og þar með fylgt ráðleggingum sérfræðinga eru ofsareiðir ...
... en ekki bara reiðir, það er svo mikil sorg í þessu öllu, sorg sem tengist fjárhag, réttlæti, sanngirni og svikum.  Fólk er miður sín yfir því að eiga hafa ekki lengur fjárhagslegt öryggi, eftir að lagt sig fram um að byggja það upp með smásparnaði áratugum saman, vegna þess að því  hefur verið kennt að það sé dyggð að spara.
Fólk er miður sín yfir að geta ekki stutt við bakið á börnum sínum, sem eru í námi erlendis eða stefna þangað.  Námsmenn erlendis eru að velta fyrir sér í fúlustu alvöru hvern einasta dag að gefast upp fyrir gengisbreytingum, gefa námið upp á bátinn og koma heim.  Aldraðir sem eru búnir að búa í haginn fyrir efri árin vita ekki sitt rjúkandi ráð.  Unga fólkið með stóru húsnæðislánin og rýrnandi eignir er á barmi taugaáfalls ... það er margt að hugsa sér til hreyfings eða hengingar.
Fólk er reitt yfir að hafa verið haft að fíflum af bankagosum, sem undanfarin ár hafa dundað við að koma hag sínum vel fyrir borð með fjárfestingum í útlöndum.  Sumir hafa komið sér þar vel fyrir, eins og Bjarni Ármannsson sem býr í Noregi, fluttur búferlum og þarf lítið sem ekkert að koma heim á klakann sem er kaldari en nokkurn tíma fyrr.
Það er líka sorglegt að sömu stjórnarherrar og gáfu bankana okkar á sínum tíma séu að setja sig í bjargvættishlutverk, í slökkviliðsbúninga til að slökkva elda sem þeir sjálfir kveiktu, draga að landi sökkvandi skútu sem þeir í skjóli myrkurs sökktu sjálfir, með því að gefa bankagosunum heimildir og tæki til að koma öllu hér heima í kaldakol.
Mér finnst fáránlegt að horfa á stjórnarherrana og þennan gamla einræðisherra í seðlabankanum hreykja sér af því að vera að bjarga íslenskri alþýðu.  Auðvitað á að setja þessa menn af og draga þá til ábyrgðar ásamt bankagosunum sem hafa leikið sér með fjármál heillar þjóðar eins og spilagosar í matadorleik.
Vitaskuld á að leggja hald á eignir þeirra manna sem fóru fremstir í flokki undanfarin ár, sönkuðu að sér eignum, börðu sér á brjóst og borguðu sér ofurlaun og brjálæðislega bónusa fyrir einstakan dugnað í matadorspilamennsku með alvöru peninga - okkar peninga!
... en þrátt fyrir alla þessa reiði og sorg og sárindi megum við til með að fagna lífinu, fagna nýjum degi, fagna góðri heilsu og því að ekki er allt falt fyrir peninga.  En upp úr stendur að við þurfum peninga til þess að lifa, án þeirra erum við húsnæðislaus og matarlaus.
Samt tel ég að við getum flest sætt okkur við að hafa minni fjármuni milli handanna, þrátt fyrir allt ...
... og ég tel að hin íslenska þjóð sé nauðbeygð að safna saman brotunum, skeina rassana á óþekktaröngunum, þessum hvítflibbum sem hafa skitið upp á bak í fjármálaheiminum undanfarin ár (takk fyrir samlíkinguna frændi!).  En við viljum svo sannarlega líka fá að rasskella þá í leiðinni fyrir óþekktina og setja þá í annan skammakrók en þann sem þeir hafa búið sér í skjóli myrkurs ... í alsnægtum erlendis.
Það er nefnilega engin ástæða til þess að gleyma því að þetta eru glæpamenn sem hafa skilið eftir sig sviðna jörð!