Galadriel »

Galadriel skrifar





Ég og DDV
Fyrir og seinni myndir

KíLÓ FARIN:
___

Gestabók
Skoða :: Skrifa

Lesa gamalt

Leita í gömlum skrifum

000358




Thursday 08 / 17
Fór á fund

Jæjja ég fór á byrjendafundinn í Garðabæ í kvöld. Vigtin sagði þar hvorki meira né minna en 87,9. Þá er bara að taka sig á, ætla að mæta á fimmtudögum á fundi og fæ ég því heila 7 daga til að massa þetta. Ætla núna að reyna að ná rosa flottri byrjunarvigt. Er ýkt spennt fyrir því ;)
[2:02 am]Zero note [Add]
Wednesday 08 / 16
DDV dagur numero 1

Jæjja þá er sumarfríið búið. Mín ætlar að mæta á DDV fund á morgun, taka afleiðingum sumarsins og halda áfram að berjast við fitupúkann. Reyndar er púkinn minn núna nammipúki og hann er svaðalegur. En það er fundur á morgun kl. 19 í Garðabæ. Ætla að fara og versla grænmeti, fisk og kjöt í Kjöthöllinni á morgun. Geðveikt næs að vera bara í fríi til að dúllast í þessu. Kallinn er líka sáttur við að losna við nokkur kíló, þau hafa víst verið að bætast á hann líka. Ég ætla bara að byrja að hugsa um að losna við fyrstu fimm kílóin og svo verður ó svo gaman að vera búin að losna við þau að maður getur farið að hugsa um framhaldið. Látum þetta duga í bili.

[1:38 am]Zero note [Add]