Mitt bréf til heimsins hér má sjá...
Tuesday, June 01st 2004
loksins | 11:26 AM

loksins skrifa ég eitthvað hérna;)
Seinast þegar ég var í fríi úr vinnunni þá komst ég ekki inn á Upsaid þannig að ég gat ekki skrifað neitt.. en núna get ég það og þá kemst ég að því að áskriftin er að renna út hjá mér..
ég er að hugsa um að fara þá bara alveg yfir á blogspot og skrifa á epplapie.blogspot.com
þó það sé ekki eins skemmtilegt að vinna í þeirri síðu eins og þessari.

Entry posted by Eygló Pé | Zero note [Add] | www | E-Mail this entry

Saturday, May 15th 2004
Júróvisjón hvað... | 7:31 PM


Ekki held ég upp á júróvisjón.. ég ætla bara að læra (eða allavega þykjast læra) og kannski sofa smá.. vera samt í góðum félagsskap.
Í gærkvöld fékk ég mér svo ekkert bjór.. en bætti það upp með smá viskí.. aðeins svona smá dreitli. Var annars líka að leika mér smá í mömmó... Það kom hingað 4-5 ára stelpa, sem heitir Melisha, og við vorum að leika okkur með allt dótið sem ég á hérna, horfðum aðeins á Brother Bear og Thomas the Tank Engine. Poppuðum líka, hún fékk að standa á kolli og horfa á poppið poppast í pottinum (lokið er úr gleri) og svoleiðis. Þetta var svaka fjör. Ég heiti núna Auntie Eygló ;) Þetta var semsagt dóttir gaurs sem ég þekki og kom hingað í heimsókn í gærkvöld.
Í dag var bara skoppast í Kringluna (ég er MEGA-dugleg að læra;) með Huldu og Vance. Ég keypti mér nú ekki neitt.. nema gos að drekka. Hulda dró mig búð úr búð en ég var með hugann einhvers staðar annars staðar. Er svo aðeins búin að vera að kíkja á námsefnið.. en það er bara svo erfitt þegar maður er svona upptekinn við að láta sér leiðast.

Entry posted by Eygló Pé | Zero note [Add] | www | E-Mail this entry

Friday, May 14th 2004
| 11:39 AM

jæja, hvað er nú að frétta?
Ég er loksins búin að fara á Kill Bill 2, sá hana í góðum félagsskap (ungur maður bauð mér í bíó.. hann var reyndar búinn að sjá hana en var alveg til í að sjá hana aftur með mér..). Við fórum á hana á þriðjudagskvöldið, myndin er mjög góð og ég sé alls ekki eftir því að hafa farið á hana. Við kíktum líka aðeins á Kaffi Kúltúr og spjölluðum við fólk þar.
Í gær fór ég svo á American Style með Nilu, hafði ekki séð hana svo lengi og lá á afmælisgjöf sem ég var búin að kaupa handa henni. Annars hefur maður bara verið að læra og hangsa... aðallega að hangsa held ég. Og vinna auðvitað... Ég er reyndar að fara á eftir og skrifa undir einhverja pappíra í vinnunni upp á það að ég sé búin að segja upp. Svo er það bara bjór í kvöld og próf á mánudaginn og upp í sveit að elta gamla geit.
Eigiði góða helgi!!!

Entry posted by Eygló Pé | Zero note [Add] | www | E-Mail this entry

Monday, May 10th 2004
re: stæ | 5:55 PM


jei!! ég náði stærðfræðinni... fékk 8,0!!! TIL HAMINGJU ÉG SJÁLF!!!

Entry posted by Eygló Pé | 2 notes [Add / View] | www | E-Mail this entry

Saturday, May 08th 2004
hola! | 4:20 AM

Er ég ekki að skrifa um miðja nótt... og ég sem ætla að vakna snemma á morgun! ehm.. á eftir...
Er að hugsa um að skella mér upp í sveit með þeim gömlu. Kannski næ ég að koma mér almennilega í gang með próflesturinn. Það er mikið að lesa en það er ekkert svo mikið mál vegna þess að ég er búin að vera svo dugleg að lesa þessar bækur í vetur. Og þar að auki má mæta með þær allar í prófið;)
Ég er svo ánægð að stærðfræðiprófið var fyrst af prófunum.. það er rosalega gott að vera búin með það. Ég lenti, sem betur fer, á efni sem ég vissi gat bablað eitthvað um.. akkúrat á köflum sem ég var búin að fara sæmilega vel yfir. Það voru sumir sem lentu á efni sem ekkert var búið að fara í alla önnina, en það efni er samt í bókinni sem við lásum.. einhver smá klausa um það allavega.
En ég er ekki enn búin að fá einkunn fyrir stærðfræðina, kennarinn sagði að einkunnin kæmi á föstudag (í dag/gær) en hún er ekki ennþá komin. Ég er allavega búin að ná vettvangsnáminu, það er engin einkunn fyrir það, heldur bara staðist.
Næsta próf er ekki fyrr en á þriðjudaginn þannig að ég hef smá tíma til að lesa. Kannski fæ ég bílinn lánaðann hjá hjúunum og skelli mér á Geysi að skrifa undir ráðningarsamning.. svona fyrst búið er að semja um launin og svoleiðis.
Ég veit að ef ég verð í bænum þá festist ég við Imbann.. Ernir og Ingibjörg ætla sennilega að leigja nokkrar Pixar-myndir (Shrek, Monsters inc. o.s.frv.) og ég myndi pottþétt festast við sjónvarpið þá. Þetta eru svo skemmtilegar teiknimyndir.
Annars er ég komin með nóg af borginni í bili og þarf að komast í burtu.. get ekki beðið eftir að prófin verði búin og ég geti brunað í sveitina að vinna!

En jæja.. klukkan er að verða allt of margt... verð að fara að sofa.. ZZZZzzzzzZZZZzzzz

Góða helgi allesammen!!

Entry posted by Eygló Pé | 2 notes [Add / View] | www | E-Mail this entry

Tuesday, May 04th 2004
góðan daginn! | 10:16 AM

hæ hó! Til hamingju með daginn Nila!!!!

Nila er 26 ára í dag;) þá er hún búin að ná mér í aldri, í bili...

En hvað um það.. ég er að fara í munnlegt stærðfræðipróf klukkan hálftólf í fyrramálið og ég er sárlasin :( ég gæti sofið í allan dag en ég þarf víst að læra og læra.. Ef ég bryð nógu mikið af töflum og nota nógu mikinn nefúða þá ætti ég að komast í gegnum þetta. EN 2 spurningar:

Nennir einhver að koma með mér á KillBill 2 á morgun? það eru allir búnir að sjá hana nema ég og mig langar svo..

Og vill einhver leigja herbergið mitt í sumar?.. það er voða stórt og gott... Auðvitað er þetta ekki bara herbergi heldur stofa, eldhús og bað líka.. og svalir... en það er sameiginlegt með Huldu sys og Erni...

jæja, ég held ég ætti að fá mér eitthvað gott te með hunangi í og vona að það hafi einhver áhrif á mig (góð áhrif).

Entry posted by Eygló Pé | 2 notes [Add / View] | www | E-Mail this entry

Thursday, April 29th 2004
ég skil.... | 11:58 PM

Ég skil drauminn minn núna.. mig langar ég verð að fara til spámiðils.. getur einhver bent mér á góðan spámiðil?

Marta, ég er að skrifa þér bréf núna...

Entry posted by Eygló Pé | 2 notes [Add / View] | www | E-Mail this entry

Wednesday, April 28th 2004
sólskinsdagur | 2:43 PM

Þvílíkt sumarveður í dag.. er að hugsa um að stökkva aðeins út og lappa upp á hjólið mitt. Þarf að ryðhreinsa það aðeins og hleypa smá lofti í dekkin.. then it's good to go!!!
Svo þegar það er búið þá kíki ég kannski á lærdóminn áður en ég fer í vinnuna. Heilinn á mér tók langa athyglispásu í morgun í íslenskutíma þegar við vorum að fara yfir ýmis hugtök í setningarfræði, málfræði og bragfræði...
Annars er það að frétta síðan í morgun að ég fór með fjórum bekkjarsystrum mínum á Pítuna að fagna lokum seinasta skóladagsins fyrir próf.. Reyndar þurfum við að mæta í skólann á föstudaginn en það verður enginn venjulegur skóladagur. Við verðum með kynningar á sérkennsluverkefnunum okkar (minn hópur er með lesblindu, sem er ágætt vegna þess að mamma gat hjálpað mikið til með það verkefni) og það verður ýmist góðgæti á boðstólum o.þ.h.
Svo eftir hádegi fórum við Anna að heimsækja bekkinn "okkar" og skila þeim vinnubókunum þeirra. Við fengum þær lánaðar á sýningu hjá okkur í Kennó. Krakkarnir voru voða glaðir að sjá okkur og við skemmtum okkur mjög vel að trufla kennsluna... híhíhí.. það var gaman að sjá þau aftur.
Þegar ég kom heim var kominn póstur til mín, boðskort í "baby-shower" hjá Ástu, vinkonu minni, það verður haldið á laugardaginn. Ég þarf að finna eitthvað sætt handa litla drengnum hennar..

Entry posted by Eygló Pé | Zero note [Add] | www | E-Mail this entry

004039













Al Green ~ Let's Stay Together


Klukkan er

The current mood of epplapie at www.imood.com

The WeatherPixie



Bloggarar
Skvísurnar í B-bekknum
Epplapie á ensku
Smelly
Sigga danska
Marta franska
Helen
Fannýdanska
Hin Alheimsveika
Elva
Eva Rut í þroskaþjálfanum
Perlan
Eyjan
Qiuqun



Heimasíðan mín í skólanum

Stebbi frændi í Uppsala





Íslendingar á DeviantArt
Deviantart
ÉG
Hulda
Illmenni
ciggypiggy
TheDragonLady
Grettir
Ogn
Svarta-Perlan
Gísli
Evana
Zoot
Aðrir á DeviantArt
Animejet
Centaura
Myrhlyn
insanetinkerbell
00chalcedony00


Ýmislegt
Jón.is
Tíkin.is
Deiglan.com
Fjölmenningarráð
Félag kvenna af erlendum uppruna
Skoðun


Skólinn minn
Stundatöflur grunndeildar
Grindavík
Reykjavík
Ísland
Vit
OgVodafone
Hotmail
Spámaður



Fjölmiðlar
Mogginn
Vísir
Víkurfréttir
BBC

Ýmsir staðir sem ég hef heimsótt:
Woking
París
Istanbúl
Jerúsalem
Myndir frá Aya Napa
Giza
Kaíró
Brighton&Hove
Lake District
Grikkland
Brussel
Bergen
Cornwall
York
Cambridge
Bath
Kaupmannahöfn
Roskilde Portalen
Ég bæti við þennan lista seinna þegar ég nenni því..





Upsaid



Gestabók
Skoða :: Skrifa nafnið þitt



skoða meira

Eygló-skrifa meira blogg


Mitt bréf til heimsins...
Mitt bréf til heimsins hér má sjá
-en hann reit aldrei mér-
tíðindi er náttúran tjáði af þeirri
tign sem hennar er.

Á boðskap hennar halda
hendur sem dyljast sýn.
Fyrir hennar skuld, hjartkæru landar,
hugsið vel til mín.

Emily Dickinson



E-mail notifications


Search through entries